Carrick úr leik næstu vikurnar

Michael Carrick.
Michael Carrick. AFP

Michael Carrick miðjumaðurinn öflugi í liði Manchester United verður frá keppni næstu vikurnar.

Reiknað er með að Carrick verði frá keppni næstu fjórar vikurnar og er þetta mikil blóðtaka fyrir Manchester-liðið því Carrick hefur verið einn af betri leikmönnum liðsins á tímabilinu.

United tekur á móti nýliðum Leicester í ensku úrvalsdeildinni á morgun og á þar harma að hefna en Leicester hafði betur í fyrri leiknum í ótrúlegum leik, 5:3.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert