Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United var ánægður með leik sinna manna gegn Leicester í dag en United hrósaði 3:1 sigri og komst með honum upp í þriðja sæti deildarinnar.
„Ég er allt ánægður þegar við vinnum og þegar við skorum þrjú. Ég var ánægður með leik liðsins. Við töpuðum fyrir þeim á útivelli og það kom ekki annað til greina en að ná hefndum.
„Við stjórnuðum leiknum og þá einkum í fyrri hálfleik. Í seinni leiknum spiluðum við full mikið til baka en samt hefðum við getað skorað tvö mörk til viðbótar,“ sagði van Gaal en United gerði út um leikinn í fyrri hálfleik en eftir hann var staðan, 3:0.