Skoski miðjumaðurinn Darren Fletcher mun ekki ganga til liðs við West Ham frá Manchester United eins og búist var við.
Þetta staðfesti Sam Allardyce, knattspyrnustjóri West Ham, nú rétt í þessu eftir tapið gegn Liverpool á Anfield.
Félagaskiptaglugginn lokast á mánudagskvöld og hafði West Ham vonast til að geta gengið frá kaupum á kappanum fyrir þann tíma en nú er ljóst að samningaviðræður gengu ekki upp.