Sturridge fagnað sem þjóðhetju

Daniel Sturridge sneri í dag aftur í lið Liverpool eftir langa fjarveru vegna meiðsla þegar hann kom inná sem varamaður gegn West Ham.

Sturridge kom inná á 68. mínútu fyrir Lazar Markovic og stóðu áhorfendur á Anfield upp til að klappa fyrir honum, allir sem einn, hvort sem þeir voru á bandi Liverpool eða West Ham. Aðeins tólf mínútum síðar var hann búinn að skora og koma Liverpool í 2:0, með föstu skoti hægra megin í teignum, við gríðarlegan fögnuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert