Mourinho mun rjúfa þögnina

José Mourinho lætur dómarann Mark Clattenburg heyra það.
José Mourinho lætur dómarann Mark Clattenburg heyra það. AFP

José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea ætlar að rjúfa þögnina á morgun en hann hefur viljað ræða við fréttamenn síðustu tíu daga.

Mourinho aflýsti vikulegum fréttamannafundi fyrir leik sinna manna gegn Manchester City sem fram fór um síðustu helgi og eftir leikinn, sem endaði 1:1, veitti hann engin viðtöl.

Ástæða þess að portúgalski stjórinn neitaði að ræða við pressuna var sú að hann var sektaður um 25 þúsund pund vegna ummæla sem hann hafði um dómarann eftir leik gegn Southampton í lok desember og þá var hann mjög ósáttur við þriggja leikja bann sem Diego Costa var úrskurðaður í.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert