Par „skoraði“ á miðjum vellinum (myndskeið)

The Valley, leikvangur Charlton.
The Valley, leikvangur Charlton. Ljósmynd/heimasíða Charlton

Forráðamenn enska B-deildarliðsins Charlton, sem landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson leikur með, rannsaka nú myndefni sem sýnir par stunda kynlíf á velli félagsins.

Myndbandinu hefur verið dreift á netið og það sýnir konu og mann vera að „skora“ á miðjum velli Charlton-liðsins, The Valley, eins og sést í myndbandinu hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert