Toure viss í sinni sök um kjólinn - myndband

Yaya Toure er ekki í vafa um hvernig blessaður kjóllinn …
Yaya Toure er ekki í vafa um hvernig blessaður kjóllinn er á litinn. AFP

Það er óhætt að segja að umræða um hvernig ákveðinn kjóll sé á litinn hafi tröllriðið netheimum um allan heim í dag, eins og vandlega hefur verið lesið á mbl.is.

Hvert sem litið er virðist fólk tjá sig um hvernig kjóllinn sé eiginlega á litinn í raun og veru, þar sem fólk virðist skiptast í hópa hvort hann sé gylltur og hvítur eða blár og svartur.

Fólk er allskostar ekki á einu máli og nú hefur Yaya Toure, leikmaður Manchester City, komið með sitt innlegg í umræðuna. Að hans mati er enginn vafi um málið, eins og sjá má og heyra í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert