Gylfi Þór ekki í hópi Swansea

Gylfi Þór Sigurðsson í baráttu við Daley Blind um síðustu …
Gylfi Þór Sigurðsson í baráttu við Daley Blind um síðustu helgi. EPA

Gylfi Þór Sigurðsson er ekki í leikmannahópi Swansea í dag en liðið sækir nýliða Burnley heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu klukkan 15.

Meiðsli í utanverðri ristinni hafa verið að angra Gylfa og hann er ekki talinn leikfær í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert