Jóhann Berg og Kári skoruðu

Kári Árnason í leik með Rotherham.
Kári Árnason í leik með Rotherham. Ljósmynd/themillers.co.uk

Landsliðsmennirnir Jóhann Berg Guðmundsson og Kári Árnason skoruðu fyrir lið sín í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag.

Jóhann Berg skoraði fyrsta mark Charlton með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu og liðið fagnaði 3:0 gegn Huddersfield. Jóhann skoraði fyrsta mark leiksins.

Kári Árnason var hetja Rotherham en hann skoraði sigurmarkið gegn Millwall á 85. mínútu og Rotherham vann, 2:1.

Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu 11 mínúturnar fyrir Bolton í 1:0 sigri liðsins á móti Brighton.

Aron Einar Gunnarsson lék fyrsta klukkutímann fyrir Cardiff þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Wolves, 1:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert