Sex leikir í ensku úrvalsdeildinni

Gylfi Þór Sigurðsson verður í eldlínunni gegn Burnley í dag …
Gylfi Þór Sigurðsson verður í eldlínunni gegn Burnley í dag en hér er hann í baráttu við Daley Blind um síðustu helgi. EPA

Sex leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og meðal þeirra sem verður í eldlínunni er Gylfi Þór Sigurðsson.

Gylfi og félagar í Swansea sækja nýliða Burnley heim en Swansea vann góðan sigur gegn Manchester United um síðustu helgi og leikmenn liðsins ættu því að mæta vel stemmdir til leiks í dag.

Leikir dagsins eru:

12.45 West Ham - Crystal Palace
15.00 Burnley - Swansea
15.00 Man Utd - Sunderland?
15.00 Newcastle - Aston Villa
15.00 Stoke - Hull
15.00 WBA - Southampton

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert