Fjögurra leikja bann bíður Jedinak (myndskeið)

Mile Jedinak.
Mile Jedinak. AFP

Mile Jedinak fyrirliði Crystal Palace og ástralska landsliðsins í knattspyrnu á yfir höfði sér fjögurra leikja bann fyrir að gefa leikmanni West Ham olnbogaskot í viðureign Lundúnaliðanna í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Diafra Sakho varð fyrir olnbogaskotinu. Dómarinn Mike Dean sá ekki atvikið en líklegt er að aganefnd enska knattspyrnusambandsins skoði upptöku af leiknum og úrskurði Jedinak í fjögurra leikja bann en fyrr á leiktíðinni fékk Ástralinn að líta rauða spjaldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert