„Hefði getað bundið enda á ferilinn“

Fóturinn á Ireland var illa útleikinn eftir brotið.
Fóturinn á Ireland var illa útleikinn eftir brotið. Ljósmynd/twitter

Mark Hughes knattspyrnustjóri Stoke segir að tækling Maynor Figueroa á Stephen Ireland í leik Stoke og Hull í gær hefði getað bundið enda á feril Irelands.

Stór skurður opnaðist á kálfa Irelands eftir tæklingu Figueroa en Ireland lá óvígur eftir og var borinn af velli.

„Tæklingin á Ireland hefði getað bundið enda á feril hans. Hvers vegna dómarinn gaf ekki beint rautt spjald á þetta brot skil ég ekki,“ sagði Hughes eftir leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert