Hvað gerir Liverpool gegn meisturunum

Liverpool tekur á móti Manchester City klukkan 12 í dag.
Liverpool tekur á móti Manchester City klukkan 12 í dag. EPA

Tveir hörkuleikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og þá ræðst það hvaða lið fagnar sigri í deildabikarkeppninni.

Liverpool fær Englandsmeistara Manchester City í heimsókn á Anfield en flautað verður til leiks klukkan 12. Strax á eftir tekur Arsenal á móti Everton.

Eftir leikina í deildinni er svo komið að úrslitaleiknum í deildabikarkeppninni þar sem Lundúnaliðin Chelsea og Tottenham leiða saman hesta sína á Wembley.

Leikir dagsins:

12.00 Liverpool - Manchester City
14.05 Arsenal - Everton
16.00 Chelsea - Tottenham

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert