Vonandi upphafið á einhverju mögnuðu

John Terry fagnar marki sínu ásamt Diego Costa og Gary …
John Terry fagnar marki sínu ásamt Diego Costa og Gary Cahill. AFP

John Terry, fyrirliði Chelsea, var skiljanlega í skýjunum eftir að liðið hampaði enska deildameistaratitlinum eftir 2:0 sigur á Tottenham í dag, en sjálfur skoraði Terry fyrra markið.

„Þetta er fyrsti titillinn á tímabilinu og hann er risastór. Vonandi er þetta upphafið á einhverju mögnuðu en við verðum að einbeita okkur vel að deildinni. Mér fannst við koma vel inn í leikinn og pressuðum þá af krafti. Fyrri hálfleikurinn var jafn en við stjórnuðum seinni hálfleiknum,“ sagði Terry.

Þetta var þriðji deildameistaratitill félagsins undir stjórn Jose Mourinho og hefur Terry tekið þátt í öllum úrslitaleikjunum. „Stjórinn gerði okkur það ljóst að við ætluðum okkur að vinna þennan titil,“ sagði Terry.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert