Persie ekkert að koma til

Robin van Persie í leiknum gegn Swansea þann 21. febrúar.
Robin van Persie í leiknum gegn Swansea þann 21. febrúar. AFP

Robin van Persie framherji Manchester United missir af leik liðsins gegn Newcastle á morgun en óvíst er hvenær hann snýr aftur á knattspyrnuvöllinn þar sem Hollendingurinn glímir við meiðsli á ökkla.

Van Persie fór af velli í tapi United gegn Swansea og yfirgaf Liberty-völlinn í Wales fyrir tveimur vikum á hækjum. Hann hefur nú þegar misst af einum leik Manchester-liðsins gegn Sunderland sem fram fór síðastliðinn laugardag.

„Þetta er ökklavandamál. Ég held að þetta sé ekki alvarlegt en ökklameiðsli geta tekið langan tíma. Þetta verður ekki ein vika eða tvær,“ sagði van Gaal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert