Við getum náð City

Arséne Wenger.
Arséne Wenger. AFP

Arséne Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segir baráttuna um fjórða sætið vera gríðarlega harða en segir lið sitt jafnframt vel geta náð Mancheser City að stigum en liðið er fjórum stigum á eftir City sem er í 2. sætinu. 

„Það eru mörg lið að eltast við efstu fjögur sætin. Þetta mun á endanum velta á stöðugleika og andlegu hliðinni en við þurfum góð úrslit á miðvikudagskvöld. Auðvitað getum við náð Manchester City. Lið sem eru fjórum stigum á eftir okkur segjast geta náð okkur, við getum því náð þeim,“ sagði Wenger en Arsenal á leik við Q.P.R. á miðvikudagskvöld.

„Við höfum séð hversu hratt hlutirnir geta breyst á síðustu tveimur, þremur mánuðum tímabilsins. Við verðum að einbeita okkur að lenda eins ofarlega og við getum,“ sagði Wenger.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert