„Get aldrei orðið eins og Gerrard“

Steven Gerrard.
Steven Gerrard. AFP

Þjóðverjinn Emré Can hefur átt afar góðu gengi að fagna með liði Liverpool á leiktíðinni og margir hafa líkt honum við fyrirliðann Steve Gerrard.

Can, sem er 21 árs gamall og kom til Liverpool frá Leverkusen í fyrra, hefur fest sig í sessi með Liverpool-liðinu í vetur. Hann hefur leyst stöðu miðvarðar og miðjumanns en í síðarnefndu stöðunni sér hann framtíðina með liðinu.

„Þjálfarinn veit að ég vil frekar spila á miðjunni og í þeirri stöðu sé ég sjálfan mig í framtíðinni. Eins frábærlega og samanburðurinn við Steven Gerrard hljómar þá get ég aldrei orðið eins og hann. Gerrard hefur spilað með Liverpool frá því hann var strákur og er lifandi goðsögn hjá félaginu,“ segir Emré Can við þýska blaðið Bild.

Can og félagar verða í eldlínunni í kvöld en þá tekur liðið á móti nýliðum Burnley.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert