Gylfi fékk hæstu einkunn

Gylfi Þór í baráttunni á White Hart Lane í kvöld.
Gylfi Þór í baráttunni á White Hart Lane í kvöld. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína með Swansea gegn gömlu félögunum í Tottenham á White Hart Lane í kvöld.

Gylfi fékk hæstu einkunn leikmanna Swansea ásamt S-Kóreumanninum Sung-Yueng Ki hjá Sky Sports eða 7 en þeir skoruðu sitt hvort markið. Gylfi var óheppinn að skora ekki tvö mörk en hann smellti boltanum í stöngina með skoti úr aukaspyrnu í fyrri hálfleik og upp úr spyrnunni skoraði Ki.

Vefurinn WalesOnline útnefndi Gylfa Þór mann leiksins en Gylfi fékk 8 í einkunn og fékk hæstu einkunn leikmanna Swansea.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert