Hræktu þeir hvor á annan? - Myndband

Hræktu Jonny Evans og Papiss Cisse á hvorn annan?
Hræktu Jonny Evans og Papiss Cisse á hvorn annan? AFP

Í leik Newcastle og Manchester United sem nú stendur yfir í ensku úrvalsdeildinni kom upp furðulegt atvik í fyrri hálfleik þar sem þeim Jonny Evans og Papiss Cisse virtist lenda saman.

Ekki var hægt að sjá í fyrstu hvað hefði komið upp á, en í endursýningu virðist svo vera sem þeir hafi hrækt hvor á annan og snöggreiðst báðir um leið.

Þetta furðulega atvik má sjá í meðfylgjandi myndbandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert