Balotelli sendi Rodgers hárbeitt skilaboð

Balotelli gengur af velli.
Balotelli gengur af velli. EPA

Mögulega er ítalski framherjinn hjá Liverpool Mario Balotelli búinn að brenna allar brýr að baki sér hjá liðinu þar sem hann setti inn afar vafasama mynd á Instagram-síðu sína í dag. 

„Einhverjum líkar ekki við mig, en ólíkt því sem sumir segja um mig, þá er ég liðsmaður og er svo stoltur af liðinu mínu, af þessum sigri, og af þessum stuðningsmönnum. Höldum áfram...“ sagði meðal annars í texta undir mynd af leikmönnum Liverpool fagna.

Balotelli kom til Liveropol fyrir 15 milljónir punda og hefur aðeins skorað fjögur mörk fyrir liðið á leiktíðinni og hefur spilamennska hans ekki þótt nægilega góð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert