„Get ekki ímyndað mér að hann hafi hrækt“

Papiss Cisse í baráttu við Daly Blind á St.James Park …
Papiss Cisse í baráttu við Daly Blind á St.James Park í gær. AFP

Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United segist ekki geta ímyndað sér að Jonny Evans hafi hrækt á Papiss Cisse í leik Newcastle og Manchester United á St.James Park í gærkvöld.

Aganefnd enska knattspyrnusambandsins mun væntanlega skoða málið í dag en þeir Cisse og Evans lentu í rimmu úti á vellinum og eru taldir hafa hrækt á hvorn annan.

„Ég sá þetta ekki frá varamannabekknum en ég get ekki ímyndað mér að Jonny Evans, þessi ljúfi drengur, hafi gert þetta. Það var ekkert rætt um þetta inni í búningsklefanum,“ sagði Van Gaal við fréttamenn eftir leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert