Giggs pirraður út í Gaal?

Ryan Giggs og Louis van Gaal.
Ryan Giggs og Louis van Gaal. EPA

Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United var gríðarlega ánægður með síðbúið sigurmark United gegn Newcastle í gær í ensku úrvalsdeildinni og fagnaði því með aðstoðarmanni sínnum Ryan Giggs sem var ekki jafn skemmt og virtist jafnvel pirraður út í Hollendinginn.

Van Gaal sagði þó á blaðamannafundi í dag málið vara argasta þvælu.

„Ég er mjög pirraður að fá þessa spurningu af því að það sjá allir að sambandið milli okkar er gott. Við vinnum mjög mikið saman. Ekki bara með Ryan heldur með starfsólki og leikmönnum. Ég er mjög pirraður og ég mun grípa til minna ráða gagnvart fjölmiðlum. Ég er ekki ánægður,“ sagði Van Gaal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert