Suárez snýr aftur á Anfield

Suárez í búningi Liverpool.
Suárez í búningi Liverpool. AFP

Framherjinn Luis Suárez mun snúa aftur á Anfield í sumar en Úrúgvæinn fór á kostum með Liverpool-liðinu á síðustu leiktíð.

Suárez, sem var seldur til Barcelona síðastliðið sumar, mun taka þátt í kveðjuleik Steven Gerrards sem yfirgefur Liverpool í sumar og gengur í raðir LA Galaxy.

Gerrard mun bera fyrirliðabandið í öðru liðinu en í hinu verður Jamie Carragher með fyrirliðabandið. Meðal fleiri leikmanna sem taka þátt í leiknum má nefna Fernando Torres, Pepe Reina, Dirk Kuyt, Xabi Alonso, Thierry Henry, John Terry og Didier Drogba

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert