Welbeck er markahæstur

Danny Welbeck fagnar marki sínu gegn Litháum ásamt Wayne Rooney.
Danny Welbeck fagnar marki sínu gegn Litháum ásamt Wayne Rooney. AFP

Danny Welbeck framherji Arsenal og enska landsliðsins er markahæsti leikmaðurinn í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu.

Welbeck, sem skoraði eitt mark í 4:0 sigri Englendinga gegn Litháum á föstudagskvöldið, hefur skorað 6 mörk í fimm leikjum Englendinga en þeir hafa unnið alla sína leiki í undankeppninni.

Þessir eru markahæstir:

6 - Danny Welbeck, Englandi
5 - Omer Damari, Ísrael
5 - Kyle Lafferty, N-Írlandi
5 - Thomas Müller, Þýskalandi

Gylfi Þór Sigurðsson kemur svo skammt undan en hann hefur skorað 4 mörk í fyrstu fimm leikjum Íslendinga í keppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert