Líkir Van Gaal við djöfulinn

Louis van Gaal.
Louis van Gaal. AFP

Argentínska knattspyrnugoðsögnin Diego Maradona líkir Louis van Gaal knattspyrnustjóra Manchester United við djöful vegna þess hvernig hann hefur komið fram við kólumbíska framherjann Radamel Falcao.

Falcao, sem er í láni frá Mónakó, hefur verið úti í kuldanum hjá Van Gaal megnið af tímabilinu og var meira að segja skyldaður til að spila með varaliði félagsins einn leik.

Maradona er staddur í Kólumbíu þar sem hann tekur þátt í ágóðaleik og þar lét hann gamminn geysa.

„Van Gaal er ekki góður maður. Hann er líkari djöflinum en einhverju öðru,“ sagði Maradona, sem liggur sjaldnast á skoðunum sínum.

Líklegt er að Falcao verði enn að sætta sig við bekkjarsetu á morgun þegar Manchester United fær granna sína í Manchester City í heimsókn á Old Trafford.

<br/><br/>
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert