Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að það komi sér ekki á óvart að félagið sé talið það óvinsælasta í enska boltanum, en liðið trónir þar á toppnum ef litið er til notkunar samfélagsmiðla.
„Ég held það sé vegna þess að við erum leiðinlegt lið, við höfum verið á toppi deildarinnar frá því hún byrjaði í haust og erum með sjö stiga forystu nú þegar stutt er eftir. Ég held að fólki í þessu landi líki það ekki sérstaklega vel,“ sagði Mourinho og komst að sjálfsögðu í fyrirsagnirnar fyrir vikið, ekki í fyrsta sinn.
Chelsea mætir Manchester United í stórleik helgarinnar og Mourinho segir að samband sitt og Louis van Gaal, stjóra United, sé mjög gott.
„Hann er mjög, mjög góður vinur. Við erum að vinna hjá félögum með sömu markmið og þó við tölum ekki saman í hverri viku þá kunnum við vel við hvorn annan,“ sagði Mourinho og var að lokum spurður hvort hann vonist til þess að verða útnefndur knattspyrnustjóri ársins.
„Ég er ekki hér til að verða bestur sjálfur heldur til þess að vinna ensku úrvalsdeildina.“