Coutinho hugsaði sig ekki tvisvar um

Philippe Coutinho hefur spilað frábærlega á tímabilinu fyrir Livepool til …
Philippe Coutinho hefur spilað frábærlega á tímabilinu fyrir Livepool til þessa. AFP

Liverpool hefur átt í erfiðleikum með að semja við Raheem Sterling en það heyrist ekki orð um Philippe Coutinho, enda var ekki mikið mál fyrir félagið að semja við hann. „Liverpool hefur alltaf komið fram við mig af mikilli hlýju, ég hugsaði mig ekki tvisvar um þegar mér var boðið að endurnýja saminginn,“ sagði Coutinho í viðtali við Liverpool Echo á dögunum.

„Það hefur alltaf verið passað vel upp á mig hjá þessu félagi og ég er mjög ánægður hjá þeim, ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um,“ sagði Liverpool en án efa munu félög sína kappanum áhuga fari svo að Liverpool komist ekki í Meistaradeildina.

„Hugur minn er hjá Liverpool, ég er leikmaður þess og hugsa ekki um hina hlutina vegna þess að ég er ánægður hérna,“ sagði Coutinho.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert