Balotelli út fyrir Ballotelli

Mario Balotelli.
Mario Balotelli. AFP

Nú getur hver sem er kosið leikmann ársins hjá Liverpool á heimasíðu félagsins.

Á dögunum bárust fréttir af því þar sem stuðningsmenn Manchester United hvöttu alla til þess að kjósa Balotelli sem leikmann ársins í einskærri kaldhæðni þar sem ítalski framherjinn hefur verið langt frá sínu besta.

Í dag bárust fréttir af því að forráðamenn heimasíðunnar hjá Liverpool hefðu tekið kappann úr úr lista mögulegra leikmanna.

Væntanlega vegna þess að tölurnar bentu til þess að hann myndi hreppa titilinn sem leikmaður ársin að mati stuðningsmanna Liverpool. 

Nafni hans var þó bætt við á lista mögulegra leikmanna á ný en þá var það vitlaust skrifað, eða „Ballotelli“ en það hefur einnig verið leiðrétt.

Fróðlegt verður að sjá hvað kemur út úr könnuninni en hana má taka hér. 

Við á mbl.is hvetjum að sjálfsögðu alla til þess að kjósa eftir eigin sannfæringu en hér má sjá umfjöllun The Independent um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert