Bjóða bæði Eiði og Heskey samning

Eiður Smári Guðjohnsen og Emile Heskey fagna marki.
Eiður Smári Guðjohnsen og Emile Heskey fagna marki. Ljósmynd/Twitter-síða BWFC

Neil Lennon, knattspyrnustjóri Bolton Wanderers, staðfesti í dag að bæði Eiði Smára Guðjohnsen og Emile Heskey hefðu verið boðnir nýir samningar vegna frammistöðu þeirra með liðinu seinni hluta vetrar.

Eiður, sem varð 36 ára í haust, og Heskey, sem er 37 ára, hafa reynst liði Bolton dýrmætir. „Við bjóðum bæði Heskey og Guðjohnsen nýja samninga því þeirra framlag til liðsins hefur verið stórt. Við myndum segja þeim það ef við værum á annari skoðun, en þeir hafa verið okkur mikilvægir og ekki bara inni á vellnum. Áhrif þeirra á hópinn hafa verið stórkostleg," sagði Lennon við Sky Sports.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert