Suárez horfir á alla Liverpool-leiki

Luis Suárez á blaðamannafundinum í dag.
Luis Suárez á blaðamannafundinum í dag. AFP

Luis Suárez, leikmaður Barcelona, sat fyrir svörum á blaðamannafundi liðsins í dag en annað kvöld fer síðari viðureign liðsins fram í átta liða úrslitunum gegn Paris Saint Germain en fyrri leikurinn fór 3:1 í París.

Á blaðamannafundinum kom í ljós að Suárez, sem er fyrrverandi leikmaður Liverpool, horfir ennþá á eins marga leiki með gamla félaginu og hann getur.

„Ég reyni að horfa á alla leiki með Liverpool í sjónvarpinu. Þeir hafa mjög góða leikmenn en þeir vissu að draumur minn var að spila með Barcelona,“ sagði Suárez meðal annars við fréttamenn.

Myndskeiðið má hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert