Silva er óbrotinn

David Silva liggur á vellinum eftir höggið sem hann fékk.
David Silva liggur á vellinum eftir höggið sem hann fékk. AFP

Spænski knattspyrnumaðurinn David Silva hóf æfingar með Manchester City á ný í morgun eftir að myndatökur leiddu í ljós að hann væri óbrotinn eftir harkalegt kjaftshögg sem hann fékk frá Cheikhou Kouyate, leikmanni West Ham, í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.

Silva fékk þá olnboga Kouyate í andlitið í návígi þeirra og steinlá, og óttast var að hann væri með kjálkabeinsbrotinn.

Hann mætti á æfingu á ný í morgun og veifaði til fréttamanna sem fylgdust með. City mætir Aston Villa í úrvalsdeildinni á laugardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert