Tíu leikmenn á förum frá Liverpool?

Glen Johnson mun líklega yfirgefa Liverpool í sumar.
Glen Johnson mun líklega yfirgefa Liverpool í sumar. AFP

Miklar sumarhreingerningar eru framundan á Anfield í sumar en allt að tíu leikmenn Liverpool kunna að vera á förum frá félaginu.

Það sem liggur ljóst fyrir nú er að fyrirliðinn Steven Gerrard yfirgefur félagið en hann hefur samið við bandaríska liðið LA Galaxy.

Aðrir leikmenn sem gætu farið frá liðinu eftir tímabilið eru: Glen Johnson, Kolo Toure, Mario Balotelli, Javi Manquillo, Fabio Borini, Rickie Lambert og Brad Jones og þá er óvíst um framtíð Martin Skrtel og Raheem Sterling.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert