De Gea boðinn mikill peningur

David de Gea hefur verið frábær í vetur.
David de Gea hefur verið frábær í vetur. AFP

Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United segir að markverði liðsins, David de Gea hafi verið boðinn mikill peningur til þess að halda áfram að spila fyrir United en kappinn hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid á tímabilinu eftir góða frammistöðu.

„Þú verður að spyrja David de Gea (hvort hann haldi áfram), ekki mig. Hann verður að skrifa undir, við höfum boðið honum mikinn pening,“ sagði van Gaal en Hollendingurinn vildi ekkert ræða um Memphis Depay og mögulega komu hans til liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert