Eiginkona Rio Ferdinands látin

Rio Ferdinand.
Rio Ferdinand. AFP

Rebecca Ellison, eiginkona enska varnarmannsins Rio Ferdinands fyrrverandi fyrirliða Manchester United og núverandi leikmanns Queens Park Rangers lést í nótt af völdum krabbameins.

Ellison og Ferdinand giftust árið 2009 en um krabbamein í brjósti var að ræða. Hún lætur eftir sig þrjú börn.

„Rebecca, mín yndislega kona, lést í gær friðsamlega eftir stutta baráttu við krabbamein á Royal Masden spítalanum í Lundúnum,“ sagði Ferdinand á heimasíðu QPR.

Hér má sjá umfjöllun The Guardian.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert