Terry meistari sendir samúðaróskir til Rio (myndskeið)

John Terry og Didier Drogba í leiknum í dag.
John Terry og Didier Drogba í leiknum í dag. AFP

John Terrry fyrirliði Chelsea leiddi lið sitt í dag í fjórða skipti til Englandsmeistara titilsins en titillinn var sá fimmti í sögu félagsins.

Hann var með forgangsröðina á hreinu í fagnaðarlátunum en hans fyrsta verk í viðtali við Sky Sports var að senda samúðaróskir til Rio Ferdinands og fjölskyldu hans.

„Áður en við förum annað þá vil ég fyrir hönd allra í Chelsea að senda samúðaróskir til Rio Ferdinands og fjölskyldu hans,“ sagði John Terry en eiginkona Ferdinands lést í gær eftir stutta baráttu við krabbamein.

Rio Ferdinand ásamt konu sinni, Rebecca Ellison árið 2013.
Rio Ferdinand ásamt konu sinni, Rebecca Ellison árið 2013. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert