Carragher gerir grín að Owen (myndskeið)

Steven Gerrard og Jamie Carragher á góðri stundu.
Steven Gerrard og Jamie Carragher á góðri stundu. AFP

Jamie Carragher sló á letta strengi á sjónvarpsstöðinni Sky Sports í umræðu við Gary Neville þegar þeir félagar tóku saman atburði liðinnar helgar í ensku úrvalsdeildinni.

Þar talaði Neville meðal annars um það sem felst í því að spila í ákveðnum treyjum fyrir félög eins og Manchester United og nefndi hann treyju númer sjö hjá liðinu sem dæmi.

Þegar Neville hafði talið upp nöfn þeirra Bryan Robson, George Best, Eric Cantona, David Beckham og Cristiano Ronaldo bætti Carragher við nafni Michaels Owen, í einskærri kaldhæðni auðvitað, en hann lék í þeirri treyju á stuttum ferli sínum í Manchester-borg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert