Býst við að Sterling verði um kyrrt

Raheem Sterling.
Raheem Sterling. AFP

Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool segist búast við því að Raheem Sterling verði um kyrrt hjá félaginu.

Sterling á tvö ár eftir af samningi sínum við Liverpool en eins og fram hefur leikmaðurinn sagt að hann vilji komast í burtu frá félaginu.

„Raheem á tvö ár eftir af samningi sínum og ég reikna með því að hann verði hjá okkur út þann tíma,“ segir Rodgers en Liverpool mætir Stoke á útivelli í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun.

Manchester City og Chelsea eru bæði sögð áhugasöm um að fá Sterling í sínar raðir og eru reiðubúin að punga út háum fjárhæðum fyrir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert