Crouch í sögubækurnar

Peter Crouch fagnar marki sínu í dag.
Peter Crouch fagnar marki sínu í dag. AFP

Peter Crouch framherjinn hávaxni í liði Stoke City skráði nafn sitt í sögubækurnar í ensku úrvalsdeildinni þegar hann skoraði sjötta markið í 6:1 sigri liðsins gegn Liverpool í lokaumferð deildarinnar.

Crouch, sem er 34 ára gamall, skoraði sitt 47 skallamark í ensku úrvalsdeildinni og hann komst með þar frammúr goðsögninni Alan Shearer sem skoraði 46 skallamörk á ferli sínum í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert