De Gea verður að ákveða sig

Louis van Gaal.
Louis van Gaal. AFP

Louis van Gaal, stjóri Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, segir að David De Gea, markvörður liðsins, verði að ákveða sig hvort hann ætli sér að vera áfram eða ekki.

Manchester United gerði markalaust jafntefli við Hull City í lokaleik tímabilsins í dag, en David De Gea var fjarri góðu gamni.

Hann meiddist í síðasta leik og var því landi hans, Victor Valdés, í markinu, en De Gea hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid undanfarnar vikur.

„Ég get ekki sagt til um það hvenær framtíð De Gea verður komin á hreint. Hann verður að ákveða sig,“ sagði Van Gaal við BBC í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert