Didier Drogba leikur í dag sinn síðasta leik með Chelsea þegar liðið tekur á móti Sunderland í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.
„Ég vil spila í það minnsta eitt tímabil til viðbótar og til þess að spila meiri fótbolta finnst mér ég þurfa að fara til annars liðs. Allir stuðningsmenn þekkja ást mína á Chelsea og ég vona að ég geti komið hingað aftur í framtíðinni og þá í öðru hlutverki,“ segir Drogba á heimasíðu Chelsea í dag en hann hefur skorað sjö mörk á leiktíðinni.
Drogba, sem er 37 ára gamall, sneri aftur til Chelsea fyrir tímabilið eftir að hafa spilað eitt tímabil með Galatasaray í Tyrklandi og hálft tímabil með Shanghai Shenhuga í Kína.