Úrúgvæski framherjinn, Abel Hernandez, lét skapið hlaupa með sig í gönur er Hull City og Manchester United gerðu markalaust jafntefli í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Hull féll niður í ensku 1. deildina í dag er liðið gerði 0:0 jafntefli við Manchester United, en Hull þurfti á þremur stigum að halda í dag og um leið treysta á að Newcastle United myndi tapa stigum gegn West Ham.
Newcastle vann West Ham og féll því Hull niður um deild. Leikmenn Hull voru margir hverjir orðnir pirraðir þegar líða fór á leikinn, en Hernandez tók upp á því ráði að kýla Phil Jones, varnarmann Manchester United, í magann er Hull átti hornspyrnu.
Hernandez var ekki refsað fyrir uppátækið, en hægt er að sjá myndskeið af því hér fyrir neðan.