„Ótrúlega heimskulegt“

Marouane Fellaini gengur af velli eftir brottreksturinn.
Marouane Fellaini gengur af velli eftir brottreksturinn. AFP

Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United var ekki ánægður með framgöngu Marouane Fellaini í leiknum gegn Hull í dag.

Belganum var réttilega vísað af velli fyrir afar ruddalegt brot Paul McShane og þetta þýðir að Fellaini byrjar í þriggja leikja banni á næstu leiktíð.

„Fellaini þurfti ekki að gera þetta og fyrir hann var þetta ótrúleg heimska. Á næsta tímabii byrjar hann tímabilið í stúkunni því hann getur ekki spilað fyrstu þrjá leikina. Svo á undirbúningstímabilinu þá verður hann á bekknum sem er ekki gott fyrir hann persónulega,“ sagði van Gaal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert