Derby rekur Steve McClaren

Steve McClaren er hér ásamt Jose Mourinho, stjóra Chelsea.
Steve McClaren er hér ásamt Jose Mourinho, stjóra Chelsea. AFP

Steve McClaren, knattspyrnustjóri Derby County í ensku 1. deildinni, var látinn taka poka sinn í dag, en félagið gaf frá sér tilkynningu nú rétt í þessu.

Derby hafnaði í 8. sæti deildarinnar með 77 stig og var grátlega nálægt því að komast í umspil, en stigi munaði á milli Derby og Ipswich, sem komst í umspil.

McClaren var ráðinn til starfa hjá Derby árið 2013 og kom liðinu í úrslitaleik umspilsins á síðustu leiktíð gegn QPR, en liðið tapaði þar 0:1.

Hann var látinn taka poka sinn í dag, en þetta kom fram í tilkynningu félagsins. Derby leitar nú að nýjum stjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert