„Getum orðið meistarar á næsta ári“

Rooney í leiknum gegn Hull í gær.
Rooney í leiknum gegn Hull í gær. AFP

Wayne Rooney fyrirliði Manchester United telur að liðið geti hamað enska meistaratitlinum á næsta tímabili en United endaði í fjórða sæti á leiktíðinni sem lauk í gær.

„Ég tel að við séum nálægt þessu. Eftir tíu eða ellefu fyrstu þá held að ég að við höfum verið með 13 stig en við náðum síðan að bæta okkar leik og það er ekki spurning í mínum huga að við erum að nálgast þau bestu. Ef okkur tekst að fá tvo til þrjá góða leikmenn til liðs við okkur í sumar þá lít ég svo að við getum orðið meistarar á næsta tímabili,“ segir Rooney.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert