Leikmenn Chelsea sungu „Coco“ inni í klefa

Leikmenn Chelsea fögnuðu Englandsmeistaratitlinum í gær.
Leikmenn Chelsea fögnuðu Englandsmeistaratitlinum í gær. AFP

Leikmenn enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea gátu fagnað í leikslok gegn Sunderland í lokaumferð deildarinnar á Stamford Bridge í gær, en þá fór Englandsmeistaratitillinn á loft.

Fögnuðurinn var mikill inni í klefa, en þar fengu hin ýmsu lög að njóta sín í hátalarakerfi klefans eins og sjá má hér fyrir neðan.

Bandaríski rapparinn, O.T. Genasis, gaf frá sér lagið „Coco“ fyrr á árinu, en það hefur slegið rækilega í gagn erlendis sem og hér heima. Það hefur greinilega ratað til Bretlandseyja líka en leikmenn Chelsea sungu með því í klefanum. 

Hægt er að sjá nokkur myndbönd frá gleðinni í klefanum hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert