Touré líklega áfram hjá Liverpool

Kolo Toure verður áfram í Liverpool væntanlega.
Kolo Toure verður áfram í Liverpool væntanlega. AFP

Fílsbeinsstrendingurinn Kolo Touré mun á næstu dögum framlengja samning sinn við Liverpool um eitt ár en margir héldu að kappinn væri á leiðinni frá félaginu í vor.

„Staðan verður leyst fljótlega. Liverpool er frábært félag fyrir mig til þess að vera áfram í. Liverpool verður öflugt. Ég elska að spila í ensku úrvalsdeildinni og hef spilað allan minn feril hér. Ef ég get klárað ferilinn hérna yrði það frábært,“ sagði Touré við Liverpool Echo.

Touré er 34 ára gamall og kom við sögu í 21 leik hjá Liverpool á leiktíðinni og kom með annars inná í hálfleik í vandræðalegu 6:1 tapi liðsins gegn Stoke í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert