Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var í kvöld útnefndur þjálfari ársins í deildinni eftir að hann stýrði sínum mönnum til sigurs.
Mourinho stóð uppi sem sigurvegari í vali þjálfarasamtakanna, en Chelsea var búið að tryggja sér titilinn þegar þremur umferðum var ólokið og endaði með átta stiga forystu. Þetta er í fyrsta sinn sem hann fær þessa útnefningu, en hann var til að mynda aldrei valinn stjóri mánaðarins á nýafstöðnu tímabili.
Eddie Howe var valinn stjóri ársins í ensku B-deildinni, en hann stýrði Bournemouth til sigurs og spilar liðið í úrvalsdeildinni næsta vetur í fyrsta sinn í sögu félagsins.