West Ham verður í pottinum þegar dregið verður í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu þrátt fyrir að hafa hafnað í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
West Ham fær sætið vegna þess að lærisveinar Sams Allardyce reyndust manna prúðastir á leiktíðinni, en Englandi var úthlutað aukasæti af UEFA vegna háttvísi.
Leikmenn West Ham fá stutt sumarfrí því leikið er í 1. umferðinni eftir aðeins 37 daga. Óvíst er hins vegar hvort liðið verður áfram undir stjórn Allardyce á næstu leiktíð en þau mál eru til skoðunar þessa dagana.