Welbeck missir af bikarúrslitunum

Danny Welbeck.
Danny Welbeck. AFP

Danny Welbeck, framherji Arsenal, mun missa af úrslitaleik FA-bikarsins gegn Aston Villa á laugardag vegna hnémeiðsla sem hafa haldið honum frá keppni síðustu vikur. Þá missir hann einnig af landsleikjum Englands nú um mánaðarmótin.

„Hann verður ekki orðinn klár, hvorki fyrir okkur né England,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, til staðfestingar. Welbeck missti af síðustu fimm deildarleikjum liðsins en vonast var til að hann yrði klár í bikarúrslitin. Það gekk ekki eftir.

„Við hringdum í enska knattspyrnusambandið í gær og útskýrðum hvernig meiðslunum er háttað. Það er ekki möguleiki að hann geti spilað landsleikina eftir að hafa misst af bikarúrslitunum,“ sagði Wenger.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert