Liverpool að landa Milner

James Milner hefur líklega leikið sinn síðasta leik fyrir Manchester …
James Milner hefur líklega leikið sinn síðasta leik fyrir Manchester City. AFP

Allt útlit er fyrir að James Milner gangi í raðir Liverpool frá Manchester City en hann mun ræða við forráðamenn Liverpool í vikunni.

Samningur Milners við Manchester City er að renna út og hann myndi því fara frítt til Liverpool þegar opnað verður fyrir félagaskipti 1. júlí.

Milner er 29 ára gamall miðjumaður. Hann kom til City frá Aston Villa árið 2010 og hefur tvívegis orðið Englandsmeistari og einu sinni bikarmeistari með liðinu. Hann á að baki yfir 50 landsleiki fyrir England.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert